Á SÁÁ þessa meðferð skilið?
Húsfyllir var á baráttufundi SÁÁ sem fór fram í Háskólabíói í gærkvöldi. Formenn stjórnmálaflokka fluttu þar ávörp og leituðust við að svara þeirri spurningu hver stefna og sýn flokkanna væri í forvarna- og meðferðarmálum.
Tónlistarmennirnir Eyþór og Ellen, Erpur og Rottweiler, Bubbi, Baggalútur og Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar stigu á svið og að auki las Einar Már Guðmundsson, ljóðskáld og rithöfundur nokkur ljóð. Fundarstjóri var Davíð Þór Jónsson.
SÁÁ hefur reynt að vekja athygli á því að þjónustusamningur við ríkið er runninn út og að mikill taprekstur á meðferðarsviði er að verða samtökunum ofviða, en SÁÁ nýtir sjálfsaflafé sitt til að greiða niður halla á sjúkrareksti. Hallinn í ár stefnir í 110 milljónir króna. Framlög ríkisins til SÁÁ dógust saman um 20 milljónir á þessu ári miðað við árið á undan.
Yfir 18 þúsund sjúklingar hafi komið á Sjúkrahúsið Vog. Það þýðir í raun að 9,6% allra karla eldri en 15 ára hafa leitað sér lækninga hjá SÁÁ og 3,9% kvenna eða 7,2% allra núlifandi Íslendinga sem eldri eru en 15 ára.
Það er nauðsynlegt fyrir SÁÁ að fá fram sýn stjórnmálaflokkanna á framtíðina í meðferðarmálum og spurt er hvort ekki sé eðlilegt að standa með veglegum hætti að meðferð á Íslandi, hér eftir sem hingað til.