SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
20. október 2006 / 13:15
Senda á Facebook

Flutningar í dag

Langþráður flutninsdagur er runninn upp. Skrifstofa og göngudeild SÁÁ flytja frá Síðumúla 3-5 í Efstaleit 7 í dag. Húsið er ekki alveg fullbúið ennþá en flutningum verður ekki frestað lengur en gert var ráð fyrir að húsið yrði afhent 25. september sl..

 

Þeir sem þegar hafa flutt sig í nýja húsið segja að þar sé góður andi og gott að vera. Veðrið er líka bjart og létt er yfir fólkinu. Auk skrifstofu og göngudeildar verður forvarnadeild SÁÁ í Efstaleiti auk þess sem hluti af rannsóknarstarfi vegna vegna samstarfs SÁÁ og Íslenskrar erfðagreiningar flyst í Efstaleitið.

 

Við  flutninginn mun einnig verða kleift að stórauka hið mikla göngudeildarstarf sem unnið er á vegum SÁÁ. Þetta starf hefur fyrir löngu sprengt utan af sér eldra húsnæði í Síðumúla en starfsemin á göngudeildinni var m.a.:

 

  • 8-9000 viðtöl á ári 
  • 450 fyrirlestrar á ári: (sjúkdómurinn og afleiðingar, ýmis meðferðarúrræði og stuðningur við aðstandendur) 
  • Fjölskyldumeðferð (fyrir aðstandendur): 20 manns tvisvar í viku
  • Eftirfylgni við þá sem lokið hafa meðferð: 35 manns einu sinni í viku
  • Unglingahópur: 10-20 einstaklingar vikulega
  • Foreldrahópur fyrir foreldra barna í meðferð: 20 manns vikulega
  • Eftirfylgni við kvennameðferð: 40 konur 1-2 í viku
  • Endurkomukarlar: 40 karlar 1-2 í viku
  • Meðferðarhópur fyrir fíkla: 12 manns á dag allt árið 
  • Batanámskeið fyrir fíkla: 12-15 manns í hverjum mánuði eina helgi
  • Stuðningshópur fyrir fíkla: 10 manns á dag allt árið

 

Þessi mikla starfsemi er ekki öllum kunn og oft tala ýmsir ráðamenn eins og starf SÁÁ felist fyrst og fremst í inniliggjandi meðferð. Inniliggjandi meðferð er hins vegar hryggjarstykki starfseminnar og án hennar væri göngudeildarstarfið ekki svipur hjá sjón. 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.