Snúran - Þetta er þjóðþrifamál!
Þetta er þjóðþrifamál! Næstkomandi sunnudagskvöld, þann 22. apríl, mun ungt fólk í SÁÁ halda tónleika til að fagna sumarkomunni. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir munu fara fram í Von, húsi SÁÁ að Efstaleiti 7 og hefjast kl. 20:30.
Á staðnum er kaffihús og eru allir velkomnir. Glæsileg skemmtiatriði: Haltu Taktkjafti, Bergþór Smári, Fyndnustu menn Íslands, Freyr Eyjólfsson, Einar Ágúst, Giant Viking Show og kynnir kvöldsins verður Auðunn Blöndal.
Ungt fólk í SÁÁ er gríðarlega öflugur félagsskapur sem stendur fyrir uppákomum s.s. skíðaferðum, fjallgöngum, kvikmyndakvöldum, keilu, paint ball og öllu því öðru sem félagsmenn langar til að gera saman án áfengis og vímugjafa.
Margar skemmtanir sem ungt fólk sækir eru tengdar neyslu. Þar kemur bæði til lífsmynstur og félagslegur þrýstingur á að taka þátt í neyslunni. Þeir sem hafa lent í vanda vegna áfengis- og vímuefnaneyslu eru oft félagslega einangraðir vegna þess að bata þeirra er hætta búin með slíku skemmtanahaldi og oft eru þessar skemmtanir þær einu sem í boði eru. Markmiðið með því að bjóða upp á vímulausar skemmtanir og félagslíf er að sýna unglingum að þeir hafa val, og að margar ákvarðanir sem virðast saklausar geta reynst hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi forvarna gagnvart hinum yngri og áhrifagjarnari. Vakin er sérstök athygli á því að líklega erum við að sjá aukningu í áfengis- og vímuefnaneyslu ungs fólks að nýju með auknum innlögnum einstaklinga fyrir 20 ára aldur inn á Vog. Nær öll ungmenni sem koma til SÁÁ í meðferð hafa orðið fyrir töfum í skóla vegna vímuefnaneyslunnar og margir hafa flosnað upp frá námi. Nokkur hluti hefur hætt í skóla án þess að ljúka skyldunámi.
Þess vegna er mikilvægt að standa fyrir öflugu félagsstarfi í öruggu og vímulausu umhverfi.