Námsstefna Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa
Undirbúningur undir 9. árlegu námsstefnu Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa að Skógum, 4-6 maí nk., er nú á lokastigi. Greinilegt er að mikill áhugi er fyrir námsstefnunni sem er árlegur hápunktur í símenntunarstarfi félagsins. Ekki er nauðsynlegt að vera félagsmaður til að geta tekið þátt í námsstefnunni, einstaklingar úr mörgum fagstéttum sitja í sérhvert sinn þessa samkomu.
Hin notalega aðstaða í Skógum rúmar nokkra tugi og undanfarin ár hefur verið fullskipað í hvert rúm. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í upplífgandi fræðslu og þeirri umræðu sem fylgir eru hvattir til að bíða ekki með skráningu of lengi. FÁR hefur gefið út upplýsingarit um Skóga 2007 sem hægt er að nálgast hér.
Tekið er á móti skráningum í síma 824 7630 og far@far.is