Viðauki við þjónustusamning undirritaður á Vogi
Náðst hefur samkomulag milli heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins annars vegar og Samtaka áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, hins vegar um að framlengja þjónustusamning, sem undirritaður var 29. október 2002, um rekstur sjúkrasviðs SÁÁ til ársloka 2007.
Upphaflegur gildistími þjónustusamningsins var frá 1. janúar 2002 til 31. desember 2005, en SÁÁ hefur annast þjónustu í samræmi við ákvæði samningsins á gildistíma samningsins sem og frá 1. janúar 2006.
Til viðbótar við þjónustu samkvæmt samningnum hefur þjónusta SÁÁ vegna ópíumfíkla verið aukin, svo og göngudeildarþjónusta. Þá hefur húsnæðiskostnaður hækkað vegna breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga en í þeim fólst m.a. að undanþágur fasteignaskatta vegna sjúkrahúsa eru afnumdar í skrefum. Samkomulag er um að ráðuneytin mæti þessum kostnaði, svo og veikleika í rekstri áranna 2006-2007, með eingreiðslu að fjárhæð 80 milljónir.
Stefnt er að endurskoðun þjónustusamningsins með vísan til reglugerðar um samninga um rekstrarverkefni, sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs og vonast er til nýr þjónustusamningur taki gildi í ársbyrjun 2008.