SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
8. desember 2007 / 11:31
Senda á Facebook

Áfengisdrykkja jókst mest á Íslandi

Áfengisneysla jókst um 65% á Íslandi á árunum 1980-2005, aukningin var hvergi meiri í þeim 30 ríkjum sem eiga aðild að Efnahags-og framfarastofnuninni, OECD. Í tveimur þriðju aðildarríkjanna dró hins vegar úr áfengisneyslu.

 

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar Health at a glance sem kom út í síðasta mánuði. Þar kemur fram að þrátt fyrir mikla aukningu í áfengisneyslu þá erum við enn undir meðaltali í þessum efnum þar sem hver

Íslendingur drekkur að jafnaði 7,1 lítra af vínanda á ári sem er aðeins meira en Norðmenn og Svíar drekka en meðaldrykkja OECD landanna eru 9,5 lítrar á mann.

 

Írar drekka mest eða að jafnaði 13,5 lítra af vínanda ár hvert. Ungverjar, Frakkar og Tékkar fylgja þeim fast eftir.

 

Höfundar skýrslunnar telja að háir áfengisskatta og takmarkanir á sölu og dreifingu áfengis valdi því að Svíar, Norðmenn og Íslendingar drekka minna af áfengi en aðrar þjóðir í þessu úrtaki.

 

Sjá frétt á mbl.is

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.