SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
23. janúar 2008 / 21:21
Senda á Facebook

Aukin samvinna SÁÁ og lögreglunnar

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir og Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Með samkomulagi milli embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og SÁÁ komst á aukin samvinna milli aðila. Þessi samvinna birtist m.a. í því að lögreglan hefur greiðan aðgang fyrir einstaklinga með bráðan áfengis- og vímuefnavanda inn í meðferð og afeitrun. Samkomulagið gefur einnig tækifæri til að nýta lagaheimildir um meðferð fyrir einstaklinga háða áfengi og vímuefnum sem eru að taka út skilorðsbundna dóma. Þessa heimild hefur ekki verið hægt að nýta fyrr en nú því engin skylda hefur hvílt á sjúkrastofnunum til að taka einstaklinga til meðferðar undir þessum kringumstæðum.  Í þriðja lagi gerir samkomulagið ráð fyrir samvinnu milli aðila í fræðslu- og forvarnamálum, bæði gagnvart lögreglunni og almenningi.

 

Það er skemmst frá því að segja að þetta samkomulag hefur nýst báðum mjög vel og vakið almenna ánægju.

 

Það var t.d. þéttsetinn bekkurinn á fræðslufundi yfirlæknis SÁÁ um skaðsemi amfetamíns sem fram fór í lögreglustöðinni við Hverfisgötu í gær. Á fundinum fór Þórarinn yfir sögu amfetamíns og þróun neyslu þess í hinum vestræna heimi, hverjar eru lífeðlisfræðilegar afleiðingar af ofneyslu og hvernig fíknin birtist meðal þeirra sem sem leita sér lækninga við henni.

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjón og Þórarinn Tyrfingsson yfirlækni kampakáta í lok fræslunnar að strengja heit um áframhaldið.

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.