Fjölmenni við fyrirlestur
Dr. Alan Marlatt hélt fyrirlestur í Von þar sem hann kynnti nýja nálgun í bakslagsvörnum sem kallast “Mindfulness-Based Relapse Prevention”. Félag um hugræna atferlismeðferð og SÁÁ buðu honum að halda opinn fyrirlestur þar sem hann greindi frá rannsókn sem hefur hlotið styrk frá heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna á sviði vímuefnameðferðar (NIH / NIDA) til að rannsaka árangur af hópmeðferð þar sem “mindfulness” eða gjörhygli er beitt til að ná stjórn á fíkn og streitu. Þátttakendur mæta í 8 skipti og læra að vera meðvituð um sína líðan og takast á við hana með því að leyfa henni “að vera” og sættast við hana, en þessi tækni byggir á hugmyndafræði austrænnar heimspeki. Rannsókninni er ekki lokið, en fyrstu niðurstöður lofa góðu og því virðist hér vera á ferðinni góð viðbót við þær leiðir sem við höfum til að hjálpa fólki til að sigrast á áfengis- og vímuefnavanda sinn.
Dr. Marlatt hefur um áratuga skeið starfað að rannsóknum á sviði áfengis- og vímuefnameðferðar og verið frumkvöðull í þróun á bakslagsvörnum (relapse prevention) og þeirrar meðferðarnálgunar sem miðar að því að draga úr skaða áfengis- og vímuefna (harm reduction therapy). Hann er prófessor í sálfræði og stjórnandi rannsókna um fíknir við háskólann í Washington (Addictive Behaviors Research Center) en vefslóðin er http://depts.washington.edu/abrc