Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Fréttir

Senda á Facebook
1. maí 2008 01:01

Styrkur Aflsins

Björn Bjarnason og Ari MatthíassonAflinn – félag iðkenda qi gong (tsjí gong) á Íslandi hefur undanfarið ár stundað hinar árþúsunda gömlu, kínversku lífsorkuæfingar undir leiðsögn Gunnars Eyjólfssonar leikara í Von.

 

Gunnar Eyjólfsson lýsir qi gong á þennan hátt:

  • Qi gong er aðferð mannsins til öflunar, varðveislu og dreifingar orku um líkama sinn.
  • Qi er lífskraftur, hreyfiafl alheimsins. Maðurinn er kjarni, orka og  vitund  Vitundin stjórnar orkunni og orkan glæðir kjarnann.
  • Á íslensku er qi gong  best lýst með orðinu ræktun. Iðkun qi gong á uppruna sinn austur í Kína og hefur þróast þar í aldanna rás.
  • Qi gong er þríþætt:  hugleiðslu qi gong, bardaga- eða baráttu qi gong og heilsu qi gong. Undirstaðan er agaður líkamsburður – öguð öndun og  öguð hugsun eða einbeitni.
  • Qi er afl. Qi gong er viðleitni einstaklinga til eigin orkuvæðingar. Iðkandinn gengur til móts við lífsorkuna, gengur henni skilyrðislaust á hönd og öðlast þegnrétt í ríki hennar.

 

Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að hafa þetta andans fólk í Von og 25. apríl færði það Unglingadeild SÁÁ rausnarlegan styrk að upphæð kr. 250.000. SÁÁ þakkar styrkinn og vonar að lífskrafturinn muni ekki dvína og hreyfiafl alheimsins verða þróttmikið lengi enn.

 

meira
Til baka...

 

SMAST-greining, Short Michican Alcoholism Screening Test, telur 13 spurningar sem sem hjálpa þér að ákvarða hvort áfengisneyslan er í lagi.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata Reynsluspor Al-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 4-6
4 – 6. spor. Vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.