SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
4. júní 2008 / 22:47
Senda á Facebook

Göngudeild SÁÁ á Akureyri tekin af fjárlögum

Kristján Þór Júlíusson Dalvíkingur,alþingismaður og bæjarfulltrúi á Akureyri heimsótti göngudeild SÁÁ á Akureyri. Þórarinn Tyrfingsson útskýrði starfsemi SÁÁ og gerði grein fyrir rekstri, framlögum hins opinbera og sveitarfélaga. Í máli Þórarins kom fram að göngudeildin á Akureyri er einvörðungu rekin fyrir sjálfsaflafé SÁÁ og án nokkurrar þátttöku Akureyrarbæjar, annarra sveitarfélaga eða ríkisins.  Göngudeildin á Akureyri var á fjárlögum frá Alþingi þar til í fyrra þegar hún var tekin úr þeim.

 

Kristján svaraði fyrir ríki og bæ og skýrði aðkomu sína að málaflokknum. Vonir standa til að hið opinbera reikni með reksti göngudeilda SÁÁ í næstu fjárlagagerð. Fjörugar fyrirspurnir og umræður urðu að loknum framsöguerindum Þórarins og Kristjáns.

 

Sjá einnig myndaalbúm frá fundinum

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.