24. nóvember 2008 / 22:57
Ungt fólk í SÁÁ

Laugardaginn 22. nóvember 2008, fórum við í heimsókn á meðferðarheimilið Vík á Kjalarnesi þar sem við héldum AA fund. Eftir AA fundinn sem var að allra álit einn sá öflugasti í manna minnum var blásið til mikillar veislu á Vík þar sem bornar voru fram hnallþórur að hætti mömmu, ef ekki bara ömmu! Því næst var haldið út á Reykjanes þar sem var farið í Bláa lónið og höfðum gaman. Dvöldum við í lóninu í rúma tvo tíma áður en haldið var aftur til Reykjavíkur. Með þessari ferð er því vetrarstarf ungs fólks hafið formlega og framundan margir skemmtilegir viðburðir.
Nokkrar hugmyndir vöknuðu í ferðinni sem gaman væri að gera á nætunni. Mikill áhugi er að fara hópferð á Staðarfell og halda þar innblásinn AA fund í faðmi Dalafjalla, en samkvæmt munnmælasögum er það talið gott fyrir batann og næsta öruggt bindindi framundan ef maður sér haförn í slíkum ferðum! Við tökum því sjónaukana með til að tryggja hámarsárangur. Hin hugmyndin er að krakkarnir í U-hópnum og ungu fólki haldi jólahlaðborð fyrir pabba og mömmu. Herlegheitin yrðu í glæsilegum salarkynnum í Von um miðjan desember og alfarið í höndum krakkanna. Einungis valdir starfsmenn SÁÁ mættu aðstoða við undirbúninginn.
Ungt fólk félagsskapurinn er fyrir þá sem eru að reyna að standa sig í lífinu og eru á aldrinum 15-24 ára.
Hér er hægt að skrá sig sem félaga í SÁÁ.