SÁÁ
14. apríl 2010 / 08:57
Senda á Facebook

U-hópur: Opinn meðferðar- og stuðningshópur fyrir unglinga

 

U-hópurinn er opinn meðferðar- og stuðningshópur á mánudögum og miðvikudögum milli 18:00 og 19:00 og er fyrir unglinga sem hafa lent í vandræðum vegna neyslu vímuefna. Ekki er nauðsynlegt að hafa verið á Vogi til að taka þátt í hópnum en gott er að tala við ráðgjafa í göngudeild áður. Síðasta mánudag í mánuði borðar hópurinn saman eftir hópvinnu.

 

Sjá vefslóð

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.