SÁÁ
13. maí 2009 / 05:35
Senda á Facebook

Heiðursmenn SÁÁ funda

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

 

Næsti fundur Heiðursmanna SÁÁ verður fimmtudaginn 14. maí klukkan 12.00 á Vogi. Heiðursmenn SÁÁ hittast annan hvern fimmtudag á Vogi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar og taka á móti gestum.  Þeir sem hafa áhuga á félagsskap Heiðursmanna SÁÁ geta haft samband við Sigurð í netfangið diddifrissa@simnet.is . Sérstakur gestur næsta fundar verður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona. 

 

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir: stúdent frá MR 1987, lauk BA prófi í sagnfræði frá Háskola Íslands 1992 og magisterprof í viðskipta-og hagfræði frá Uppsalaháskóla árið 2002. Sigríður starfaði hjá Norræna félaginu sem verkefnisstjóri frá 1994 til 1996 og bjó næstu sex árin í Svíðþjóð og nam viðskipta- og hagfræði. Flutti aftur heim 2002 og vann Á Hagstofu íslands á Þjóðhagsreikningasviði, síðan á hagdeild ASÍ og sl. tvö ár hjá félags - og tryggingamálaráðuneytinu. Þar vann hún að húsnæðismálum og endurskðun almannatrygginga auk þess hún var formaður framkvæmdastjórnar Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.

 

Sigríður hóf þáttöku í pólitisku starfi með Kvennalistanum árið 1991 og gegndi ýmsum trúnaðarstöfumfyrir flokkinn. Hún hefur verið í Samfylkingunni frá stofnun hennar og sl. tvö ár varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Hún  situr nú í stjórn félagsins. Sigríður var annar tveggja fulltrúa Samfylkingarinn í Seðlabankaráði frá september 2007 en sagði sig úr rádinu í október 2008 og hvatti bankastjórnina  til að víkja til að skapa traust um Seðlabankann. Sigríður er nú alþingiskona. Hún lenti í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og skipaði því annað sæti framboðslistans í Reykjavík suður og er 4. þingamaður þess kjördæmis.

 

Sigríður er fertug og gift Birgi Hermannssyni stjórnmálafræðingi og háskólakennara. Þau eiga fjögur börn á aldrinum 3ja til 17 ára.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.