SÁÁ
27. nóvember 2009 / 11:00
Senda á Facebook

Börn á biðlistum

 

SÁÁ hefur hrint af stað miklu forvarnarstarfi sem miðar að því að ná til barna alkóhólista. Bæði til að veita þeim stuðning og aðstoð og viðurkenningu. En líka sem forvörn. Því fróðari sem börnin eru því betur í stakk búin eru þau til að taka afstöðu til eigin neyslu síðar meir.

 

Rannsóknir sýna auknar líkur á að barn sem á foreldri sem leitað hefur hjálpar á Vogi endi á Vogi sömuleiðis. SÁÁ hefur hafið forvarnarstarf fyrir börn alkóhólista á aldrinum 8-18 ára og býður nú upp á sálfræðiviðtöl fyrir þau, sjá nánar.

 

Í þessu mikla forvarnarstarfi er nú 31 barn á biðlista.  Þar fyrir utan er óvissa um nokkur börn þar sem ekki hefur náðst í foreldra/forráðamenn þeirra. 14 börn hafa bæst við biðlistann í ágúst og 5 nú þegar í september. 21 börn koma í viðtöl um þessar mundir en óvissa ríkir 15 börn.

 

Vert að að benda á vefslóðina http://www.coaweek.org/ en þar kemur fram að milljónir barna og fullorðinna barna alkóhólista búa við óvissu og erfiðleika vegna drykkju foreldra og forráðamanna. Rannsóknir sýna að a.m.k. 3.7 milljón börn á Englandi búa við alkóhólisma foreldra.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.