SÁÁ
12. október 2009 / 21:14
Senda á Facebook

Heiðursmenn funda fimmtudaginn 15. október

Sigurður Friðriksson, diddifrissa@simnet.is

 

Heiðursmenn halda sinn reglulega fund næstkomandi fimmtudag, 15. október, á Vogi kl 12:00. Gestur heiðursmanna verður Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

 

Nú er mikilvægt að starf Heiðursmanna sé þróttmikið og samstaða sé um að verja hagsmuni SÁÁ. Þess vegna er afar mikilvægt að sem flestir mæti.

 

Á stórfundi SÁÁ í Háskólabíói 7. október sl., gáfu Heiðursmenn 500 þúsund krónur í Styrktarsjóð SÁÁ. Sigurður Friðriksson, talsmaður Heiðursmanna, afhenti peningagjöfina og einnig tvær innrammaðar myndir fyrir Vin, hið nýja áfangahús SÁÁ.

 

Þá má geta þess að á stórfundinum söfnuðust 560 þúsund krónur í pott sem einnig rennur í styrktarsjóðinn.

 

SÁÁ þakkar höfðingleg framlög Heiðursmanna og fundargesta.

 

Þeir sem hafa áhuga á félagsskap heiðursmanna geta sent póst á diddifrissa@simnet.is  eða  hringt í síma 530 7600.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.