Styrktarsjóður SÁÁ

2009 stóð stjórn SÁÁ fyrir stofnun sjúkrasjóðs fyrir fátæka áfengis– og vímuefnasjúklinga.
Sjóðurinn hefur þegar komið mörgum til hjálpar og hefur greitt eftirmeðferð fyrir fátæka alkóhólista. Nú þegar verulega er vegið að flaggskipi samtakanna, sjálfu sjúkrahúsinu okkar, þá þurfum við enn aðleggja fram og sameina krafta okkar til fjáröflunar fyrir styrktarsjóðinn. Það eru til ýmsar góðar leiðir og vonum við að með samtakamætti okkar getum við gert stórvirki. Allar reglur um styrktarsjóðinn eru hér á vef SÁÁ.
Framlag í styrktarsjóðinn rennur til þess að greiða fyrir eftirmeðferð þeirra sem ekki hafa ráð á að greiða sjálfir fyrir hana og tryggir að veikir einstaklingar fái nauðsynlega hjálp og meðferð.
Starfsfólk SÁÁ veitir frekari upplýsingar. Leggja má framlög inn á styrktarreikninginn sem er í Landsbankanum 0116-15-380410 kt. 521095-2459 eða með greiðslukorti á vefnum.