SÁÁ
11. nóvember 2009 / 20:07
Senda á Facebook

Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður gestur Heiðursmanna SÁÁ

Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður

 

Heiðursmenn SÁÁ funda á Vogi, fimmtudaginn 12. nóvember kl 12.00. Gestur fundarins verður að þessu sinni, Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður. Ásbjörn á m.a. sæti í fjárlaganefnd Alþingis og er mjög mikilvægt að heiðursmenn sendi kröftug skilaboð til nefndarinnar. Allir eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.

 

Ásbjörn Óttarsson

      F. í Reykjavík 16. nóv. 1962. For.: Óttar Sveinbjörnsson (f. 14. nóv. 1942) verslunarmaður og Guðlaug Íris Tryggvadóttir (f. 14. ágúst 1941) verslunarmaður. K. Margrét G. Scheving (f. 14. nóv. 1962) útgerðarmaður. For.: Gylfi Guðmundur Scheving og Jóhanna Guðríður Hjelm. Synir: Friðbjörn (1984), Gylfi (1988), Óttar (1996).

      Skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1983.

      Sjómaður frá 1978 og útgerðarmaður frá 1983. Stofnaði ásamt öðrum fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Nesver 1987 og á og rekur Nesver síðan 2003.

      Í bæjarstjórn Snæfellsbæjar frá 1994, forseti bæjarstjórnar frá 1998. Í bæjarráði Snæfellsbæjar 1994-1998. Í Siglingaráði 1999-2007. Í kjörnefnd sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi 2003, formaður kjörnefndar 2007.

 

      Alþm. Norðvest. síðan 2009 (Sjálfstfl.).

      Fjárlaganefnd 2009-, samgöngunefnd 2009-.

 

Heiðursmenn SÁÁ er félagsskapur velunnara SÁÁ sem hittast reglulega og vinna að hagsmunamálum SÁÁ.

 

Heiðursmenn SÁÁ hittast annan hvern fimmtudag á Vogi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar og taka á móti gestum

 

Þeir sem hafa áhuga á félagsskap Heiðursmanna SÁÁ geta haft samband við Sigurð í netfangið diddifrissa@simnet.is

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.