SÁÁ
18. nóvember 2009 / 06:58
Senda á Facebook

Nú blásum við í herlúðra!

 

SÁÁ þarf á okkar hjálp að halda. Við erum farin af stað með undirskriftasöfnun og ætlum að auki að gefa út blað til að styrkja málstað okkar.

 

Þess vegna viljum við biðja sem flesta að rita 5-15 línur til stuðnings SÁÁ og Vogi. Þessar línur geta verið persónulegar, tilfinningaríkar, pólitískar, hvernig sem er. Aðalmálið er að ritstjórn SÁÁ blaðsins fái línurnar í hendur sem fyrst. Ekki seinna en í næstu viku!

 

Netfang ritstjórnar SÁÁ blaðsins er ritstjorn@saa.is

 

Bestu kveðjur

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.