SÁÁ
19. nóvember 2009 / 23:22
Senda á Facebook

Fréttatilkynning

 

Í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag (fimmtudag) birtust auglýsingar þar sem fjöldi þjóðþekktra einstaklinga skrifa undir áskorun til þingmanna um að skerða ekki framlög til áfengismeðferðar SÁÁ. Meðal þeirra sem rita undir yfirlýsinguna eru Vigdís Finnbogadóttir fv forseti Íslands og Ólafur Ólafsson fv landlæknir. Á vef SÁÁ er áskorunin og þar getur fólk ritað nöfn sín undir. Þótt söfnunin hafi ekki hafist formlega fyrr en í morgun hafa nú þegar um 4.800 manns ritað nöfn sín undir áskorunina.

 

"Við erum að skora á þingmenn að sinna því verki að forgangsraða niðurskurðinum þannig að þeim sé helst hlíft sem minnst mega sín," segir Þórarinn Tyrfingsson, formaður SÁÁ. "Þessi yfirlýsing snýst því ekki aðeins um starfsemi SÁÁ, heldur hvernig við ætlum að vernda mennsku okkar á erfiðum tímum."

 

Í Kringlunni og Smáralind voru vaskir hópar velunnara SÁÁ að safna undirskriftum á pappír. Í dag söfnuðust um 1300 nöfn á þessa lista. Hópar velunnara SÁÁ munu skipta með sér vöktum og verða í Kringlunni og Smáralind á morgun og sunnudag.

 

Svo er auðvitað hægt að skrifa undir hér á vefnum.

 

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.