SÁÁ
21. nóvember 2009 / 15:31
Senda á Facebook

Fréttabréf Húsvina SÁÁ

Málað fyrir vestan

 

Nú er um eitt ár liðið frá því hópur velunnara SÁÁ kom fyrst saman og myndaði hóp sem kallast í dag Húsvinir SÁÁ. Á þessu eina ári hafa Húsvinir komið að ýmsum verkefnum fyrir SÁÁ.

 

Á Vogi hefur verið unnið að margskonar viðhaldsverkefnum. Loftræsti og hitakerfið hefur verið endurnýjað og er nú jafn og góður hiti í húsinu og loftræsting mjög góð. Gólf hússins voru bónuð. Utanhúss hefur verið unnið markvist að ákveðnum fyrirbyggjandi verkefnum. Þakkanturinn hreinsaður og málaður, borið á alla harðviðar glugga og hurðar á nýrri hluta hússins. Allt þetta hefur verið unnið í sjálfboðavinnu.

 

Á Staðarfelli hefur talsvert verið framkvæmt. Má þar nefna að allt skólahúsið hefur verið málað að innan, gluggar málaðir, hurðar og skápar í herbergjum teknir í gegn og lakkaðir, gólfdúkur lagður á neðsta ganginn og fleira framkvæmt sem telst til eðlilegs viðhalds.

 

Smíðaður var nýr stigi niður í neðri búðir, sem svo eru kallaðar þar sem starfsmenn á Staðarfelli búa. Gert var við ýmsar steypuskemmdir á húsunum í neðri byggð og þau máluð að utan. Allt þetta hefur verið unnið í sjálfboðavinnu.

 

Einnig var ráðist í miklar framkvæmdir við endurnýjun lagna bæði fyrir hitalögn og neysluvatn í íbúðir staðarhaldara og matreiðslumanns. Einnig var gerð mikil bragarbót á varaaflstöðinni og aðstæðum í húsnæði hennar.

 

Húsvinir SÁÁ telja í dag um 30 félaga, sem allir eiga það sammerkt að vilja þakka SÁÁ fyrir sig með einhverjum hætti.

 

Lesa meira í fréttabréfi Húsvina SÁÁ

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.