SÁÁ
24. nóvember 2009 / 23:50
Senda á Facebook

Heiðursmenn halda fund

Vigdís Hauksdóttir

 

Heiðursmenn SÁÁ funda á Vogi fimmtudaginn 26. nóvember n.k. Fundurinn hefst að venju kl 12.:00. Gestur Heiðursmanna að þessu sinni verður Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og er mikilvægt að hún fái að sjá sterkan og samstæðan hóp í heimsókn sinni.

 

Heiðursmenn SÁÁ hittast annan hvern fimmtudag á Vogi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar og taka á móti gestum. Þeir sem hafa áhuga á félagsskap Heiðursmanna SÁÁ geta haft samband við Sigurð í

netfangið diddifrissa@simnet.is

 

Heiðursmenn hafa staðið sig með eindæmum vel í að safna undirskriftum undir áskorun til stjórnvalda og nú er um að gera að hittast og þétta hópinn.

 

Heiðursmenn SÁÁ eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.

 

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.