SÁÁ
3. desember 2009 / 09:01
Senda á Facebook

15 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun

 

Fimmtán þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til þingmanna um að falla frá ráðagerðum heilbrigðisráðuneytisins um skerðingu framlaga til sjúkrahússrekstur SÁÁ. Í áskoruninni kemur fram að SÁÁ hefur þegar mátt þola skerðingu tekna vegna minni framlaga frá einstaklingum og fyrirtækjum í kjölfar hrunsins. Skerðing á framlagi á fjárlögum myndi því leiða til þess að SÁÁ þyrfti að skerða þjónustu sína mun meira en ríkisstofnanir í heilbrigðisþjónustu.

 

“Við hrunið misstum við tekjur frá einstaklingum og fyrirtækjum og brugðumst starx við með því að skera allt utan af rekstrinum og skrúfa fyrir fjárfestingar og viðhald. Ef tekjur okkar skerðast enn til viðbótar verðum við að skera niður sjúkrahúsreksturinn og það bitnar fyrst og fremst á veikasta fólkinu,” segir Þórarinn Tyrfingsson, formaður SÁÁ og yfirlæknir.

 

Í áskoruninni kemur einnig fram að fjölmargar rannsóknir sýni að meðferð áfengis- og fíkniefnasjúklinga leiði til margfalds sparnaðar á öðrum sviðum samfélagsins, svo sem hjá öðrum heilbrigðisstofnunum, félagsþjónustu og löggæslu. Skerðing á framlögum til meðferðar við

áfengis- og vímuefnafíkn sé því í raun enginn sparnaður heldur ill meðferð fjármuna.

 

Meðal þeirra sem hafa skrifað undir áskorunina til þingmanna eru Vigdís Finnbogadóttir, fv forseti Íslands, Ólafur Ólafsson, fv landlæknir, Andrés Magnússon, læknir, Eyrún B. Jónssdóttir, verkefnisstjóri neyðarmóttöku, Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir ofl ofl..

 

Áskorun má finna hér.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.