SÁÁ
9. desember 2009 / 10:24
Senda á Facebook

Kjarnakonur á miðvikudagskvöld

Séra Anna Sigríður Pálsdóttir

 

Jólafundur hjá Kjarnakonum SÁÁ miðvikudagskvöldið 9. desember kl. 20 – 21 í  Von Efstaleiti 7

 

Séra Anna Sigríður Pálsdóttir er gestur Kjarnakvenna á árlegum jólafundi n.k. miðvikudagskvöld.  Heimsóknir Önnu til Kjarnakvenna hafa allaf verið notalegar og góð jólastemmingin ríkt.

 

Anna er fyrrum ráðgjafi hjá SÁÁ og hefur margra ára reynslu að því að aðstoða fólk við að losna undan streitu meðvirkninnar. Hjálpumst við að losna undan streituvaldandi hefðum jólanna. Lærum að njóta stundarinnar.

 

Allar konur hjartanlega velkomnar. Piparkökur og mandarínur í boði.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.