SÁÁ
8. desember 2009 / 11:18
Senda á Facebook

Sigur í tapleik

Einar Már Guðmundsson

 

Sigur í tapleik, mynd eftir Einar Má Guðmundsson um knattspyrnulið SÁÁ verður sýnd á RÚV klukkan 20:55 í kvöld. Félagarnir Einar Már og Einar Pálmi sátu í Kastljósi í gærkvöldi, sjá hér.

 

Í dagskrárkynningu RÚV segir: Í myndinni fá tveir liðsmenn sérstaka athygli. Við þá er rætt og þeir segja sögu sína. Annar á að baki margar meðferðir, hinn ekki. Vandinn er samt sá sami, að lifa heilbrigðu lífi og halda sér allsgáðum.

 

Þeir segja frá sínum aðferðum, hvað dregur alkóhólistann að glasinu og hvað heldur honum frá því. Af öðrum liðsmanninum eru myndir á meðan hann er í neyslu og sýna þær svart á hvítu hvílíkum breytingum einn maður getur tekið. Allsgáður er hann með skýrari mönnum en í neyslu veit hann varla af sér.

 

Myndin sýnir einnig strákana sem hóp, gleði þeirra og sorgir á vellinum. Þá er einnig rætt við fagmenn um samband íþrótta og vínuefna.

 

Framleiðandi er Kvikmyndafélag Íslands.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.