19000 skrifað undir áskorun SÁÁ

Nú hafa yfir 19000 manns skrifað undir áskorun til þingmanna um að hafna ráðagerðum um skerðingu á framlögum til áfengis- og fíkniefnameðferðar á vegum SÁÁ. Söfnun undirskrifta fer fram á vef SÁÁ, www.saa.is Þar er allt opið og gegnsætt og geta gestir vefsins lesið nöfn allra þeirra sem hafa skrifað undir áskorunina.
“Við treystum því að þingmenn taki tillit til afstöðu þessa fólks. Þetta fólk biður ekki um mikið, aðeins að fyrirhuguð 70 milljón króna skerðing á framlögum til sjúkrahúsreksturs SÁÁ verði dregin til baka,” segir Þórarinn Tyrfingsson, formaður og yfirlæknir SÁÁ.
Þórarinn segir að þótt 70 milljónir séu ekki há upphæð þá muni slík skerðing á framlagi ríkisins eyðileggja áfengis- og fíknimeðferð hjá SÁÁ. “Vegna samdráttar í framlögum fyrirtækja og einstaklinga í fyrra skárum við niður allt sem hægt var að skera niður hjá SÁÁ. Frekari niðurskurður mun rústa okkar starfi og þar með bitna helst á þeim sem veikastir eru,” segir Þórarinn.
Samhliða söfnun undirskrifta hafa samtökin gefið út nýtt SÁÁ-blað, sem liggur frammi á fjölförnum stöðum. Í blaðinu rifjar þjóðkunnugt fólk upp mikilvægi starfs SÁÁ og ákallar stjórnvöld um að standa vörð um það sem vel er gert í heilbrigðisþjónustunni á Íslandi. Meðal þeirra sem skrifa í blaðið eru forsetarnir herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Vigdís Finnbogadóttir, ritstjórarnir Styrmir Gunnarsson og Jónas Kristjánsson og predikararnir Pálmi Matthíasson og Bubbi Morthens.
Þeir sem vilja leggja baráttu SÁÁ lið geta ritað nafn sitt undir áskorunina hér.
Undirskriftirnar verða afhentar á útifundi SÁÁ á Austurvelli, 15. desember klukkan 17:00. Nánar um það síðar.
söfnun askrifta til að mótmæla skerðingu á framlagi rikissins til SAA
- 10.12.2009 22:46:10
Undirritaður telur skerðingu óheillaspor.
Gunnlaugur Ingvarsson.