10. desember 2009 / 23:37
Baráttu- og samstöðufundur á Austurvelli

Stöndum vörð um veika alkóhólista
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann hvetur alla til að mæta á Austurvöll klukkan fimm (17.00), 15. desember, og sýna samstöðu með baráttu samtakanna við að verja áfengismeðferð á Íslandi.
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga verða framlög til þessarar meðferðar skert svo mjög að vísa verður frá miklum fjölda fólks sem er í mikilli neyð. SÁÁ voru stofnuð með samtakamætti fólks sem fannst kominn tími til að grípa til aðgerða gegn áfengisvandanum. Nú er árangri af starfi þessa fólks stefnt í hættu. Það er okkar hlutverk að verja SÁÁ.
Útifundur á Austurvelli 15. desember - Páll Óskar Hjálmtýsson, ástsælasti söngvari landsins mun syngja í okkur hlýju á Austurvelli.
Þessu getum við sannarlega breytt!
Það getur vafist fyrir okkur hvað við eigum að sætta okkur við og hverju við ættum að breyta. En það vefst ekki fyrir okkur að þegar kreppir að þá skiptir máli að standa vörð um það sem máli skiptir en sleppa frekar hinu sem má missa sín. Og við vitum að í erfiðleikum er mikilvægast að gæta að þeim sem eru sjúkir og veikburða.
Af þessum sökum höfnum við alfarið tillögum um flatan niðurskurð. Flatur niðurskurður er aðeins fyrir þá sem ekki hafa annað hvort kjark eða vit. Við skorum á þingmenn að beita hvoru tveggja og breyta frumvarpi til fjárlaga, skera niður mestan óþarfan en hlífa þeim sem eru veikir og bjargarlausir.
Mætum á Austurvöll og eflum þingmönnum okkar kjark!
Þakklæti og samstaða
Mætum á Austurvöll og kveikjum á kerti sem þakklætisvott fyrir þau líf sem starfsemi SÁÁ hefur bjargað og bætt. Á aðeins rúmlega þremur áratugum hefur meðferð áfengis- og fíkniefnasjúklinga tekið algjörum stakkaskiptum á Íslandi. Tugir þúsunda Íslendinga hafa þegið aðstoð SÁÁ við að losna undan áþján áfengissýkinnar. Bati þessa fólks hefur síðan haft jákvæð áhrif á líf miklu stærri hóps aðstandenda og vina.
Sýnum samstöðu með starfi SÁÁ og þakklæti fyrir starf frumkvöðlanna með því að kveikja á kertum á Austurvelli 15. desember.