SÁÁ
13. desember 2009 / 22:31
Senda á Facebook

Ágætu fjölmiðlamenn

Þórarinn Tyrfingsson

 

Þrátt fyrir að undirskriftarsöfnun SÁÁ hafi ekki farið hátt í samfélaginu hafa nú fleiri en 20 þúsund manns skrifað undir áskorun til þingmanna um að skerða ekki framlög til samtakana. Þessi mikli fjöldi sýnir vel þann stuðning sem SÁÁ nýtur meðal þjóðarinnar en ekki síður þann hljómgrunn sem sjónarmið samtakanna hafa varðandi frumvarp til fjárlaga. Þar leggja samtökin áherslu á, að í stað þess að beita flötum niðurskurði, hlífi þingmenn þeirri starfsemi sem er brýn, þörf og hagkvæm en skeri frekar niður starfsemi sem er hvorki brýn, nauðsynleg eða aðhaldssöm.

 

Okkur forsvarsmönnum SÁÁ, finnst sem þeir rúmlega 20 Íslendingar sem skrifað hafa undir áskorun SÁÁ, eigi inni nokkra umfjöllun fjölmiðla um afstöðu sína. Ekki aðeins vegna þess að að baki henni stendur stór hópur fólks heldur ekki síður vegna þess að áskorun SÁÁ dregur fram þarft umfjöllunarefni; það er hvernig samfélag þjóðin ætlar að byggja á rústum hrunsins. Það væri ekki gott ef fjárlagafrumvarp yrði samþykkt óbreytt á meðan fjölmiðlar einbeita sér að sexþúsundustu fréttinni af Icesave.

 

Í útgjaldaliðum fjárlagafrumvarpsins liggja meginlínur þess samfélags sem byggt verður hér á næstu árum. Vegna tímaskorts eða sérkennilegra forgangsröðunar hafa stjórnvöld þó ekki nýtt tækifærið til að móta nýtt samfélag heldur gripið til þess ráðs að halda úti nákvæmlega sama ríkisvaldinu og áður en með 5 til 7 prósent skerðingu. SÁÁ finnst þessi afstaða fráleit og kannast ekki við að ráðstöfun opinbers fjár hafi verið svo snilldarleg eða réttlát á undanförnum árum að vernda þurfi hana með flötum niðurskurði. Þvert á móti telja samtökin nú nauðsyn á að forgangsraða og setja þá fremst sem minnsta bjargir hafa. Það er hin rétta afstaða þegar kreppir að og á okkur reynir.

 

Ágætu fjölmiðlamenn! Við hjá SÁÁ vildum gjarnan koma fram í miðlum ykkar til að ræða áskorun til þingmanna og þau sjónarmið sem liggja að baki henni. Við teljum slíka umræðu þarfa, brýna og nauðsynlega.

 

Með kærri kveðju,

 

Þórarinn Tyrfingsson,

Gsm: 824 7600

Netfang: thorarinn@saa.is

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...