SÁÁ
14. desember 2009 / 09:31
Senda á Facebook

Byggjum upp heilbrigt samfélag með hjartað á réttum stað!

 Bubbi Morthens

 

SÁÁ skorar á alla landsmenn að mæta niður á Austurvöll klukkan fimm þriðudaginn 15. des., og sýna samstöðu sína með baráttu samtakanna gegn áfengis- og fíkniefnavandanum. Þökkum fyrir alla þá sem hafa náð bata eftir meðferð hjá SÁÁ, fögnum fjölskyldum sem hafa öðlast betra líf og minnumst þeirra alkóhólista sem sjúkdómurinn hefur dregið til dauða.

 

Baráttan gegn áfengis- og fíkniefnavandanum er dauðans alvara. Áður en SÁÁ byggði upp sitt öfluga starf þótti sjálfsagt að alkóhólistar glutruðu frá sér góðu lífi. Skuggi alkóhólismans lagist yfir líf fjölskyldna kynslóð eftir kynslóð. Eftir áratuga starf samtakanna hefur þótt sjálfsagt að alkóhólistar fái heilbrigðisþjónustu eins og aðrir hópar sjúklinga.

 

En þessi árangur er nú í hættu. Ef skerðingartillögur fjárlagafrumvarpsins ganga fram mun alvarlegt og óbætanlegt skarð verða höggið í starf SÁÁ.

 

Þingmenn verða að finna aðrar leiðir til að spara en hætta lífi og lífshamingju alkóhólista og aðstandenda þeirra!

 

Útifundur á Austurvelli - Páll Óskar Hjálmtýsson og Bubbi Morthens syngja í okkur kjark og æðruleysi á Austurvelli 15. desember kl. 17-18

 

Páll Óskar HjálmtýssonMætum á Austurvöll og kveikjum á kerti sem þakklætisvott fyrir þau líf sem starfsemi SÁÁ hefur bjargað og bætt. Á aðeins rúmlega þremur áratugum hefur meðferð áfengis- og fíkniefnasjúklinga tekið algjörum stakkaskiptum á Íslandi. Tugir þúsunda Íslendinga hafa þegið aðstoð SÁÁ við að losna undan áþján áfengissýkinnar. Bati þessa fólks hefur síðan haft jákvæð áhrif á líf miklu stærri hóps aðstandenda og vina.

 

Sýnum samstöðu með starfi SÁÁ og þakklæti fyrir starf frumkvöðlanna með því að kveikja á kertum á Austurvelli 15. desember.

 

 

Til baka...
frábært framtak og ekki vanþörf á...
- 14.12.2009 11:25:42 ... sem aðstandandi mun ég mæta. Þekki böl áfengissýkinnar af eigin raun sem aðstandandi og veit hvaða hörmulegu afleiðingar hún getur haft og mín heitasta ósk er sú að allir alkóhólistar geti náð bata, þótt því miður viti ég að svo sé það nú ekki í raun.
Elín
Hvar var Bubbi ?

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.