SÁÁ
16. desember 2009 / 09:30
Senda á Facebook

Fjölmenni á útifundi SÁÁ

 

Fjölmenni var á útifundi SÁÁ á Austurvelli í gær. Þórarinn Tyrfingsson hélt smá tölu og afhenti formönnum þingflokkanna áskorun sem rúmlega 21 þúsund manns skrifuðu undir. Páll Óskar tók lagið en Bubbi Morthens þurfti að afboða komu sína á síðustu stundu. Fundarmenn kveiktu á blysum og kertum og stemmingin í fallegu kvöldkyrrðinni var eftirminnanleg. RÚV gerði fundinum skil í beinni í síðdegisútvarpi Rásar 2 og tíufréttir sögðu frá fundinum.

 

Hér má einnig hlusta á viðtal við ÞT á Bylgjunni.

 

Skoða myndir í myndaalbúmi félagsstarfs.

 

 

 

 

Til baka...
Frábært framtak
- 16.12.2009 16:28:30 Undirskriftasöfnunin og fundurinn er frábært framtak hjá samtökunum. Mjög vel heppnað og hlýtur að hreyfa við stjórnvöldum.
Erla Björg Sigurðardóttir

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.