SÁÁ
9. janúar 2010 / 20:06
Senda á Facebook

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu leiðir til lakari árangurs í félagsmálum

 

Íslendingar þurfa að átta sig á því að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu þýðir að þjónusta þess verður lakari. Þetta segir Þórarinn Tyrfingsson hann segir það fólki verði meiri hætta búin eftir niðurskurð í heilbrigðisþjónustu.

 

Um skeið hafi Íslendingar getað státað sig af því að hér á landi hafi heilbrigðisþjónustan verið með því besta sem gerist. Hér hafi ungbarnadauði verið minnstur í heimi, Íslendingar lifi einna lengst Evrópuþjóða og hér hafi náðst einkar góður árangur í meðferð á kransæðasjúkdómum og krabbameini í Evrópu. Þetta muni óhjákvæmilega breytast vegna niðurskurðar.

 

Þá segir hann telja að niðurskurður til meðferðarmála muni verða til þess að útgjöld til vegna félagsmála munu aukast svo sem til barnaverndarnefnda þar sem færri foreldrar nái tökum á fíknisjúkdómum.

 

Sjá frétt á visir.is

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.