SÁÁ
20. janúar 2010 / 08:18
Senda á Facebook

Páll Óskar og Diddú

 

Páll Óskar Hjálmtýsson heldur styrktartónleika fyrir SÁÁ, fimmtudaginn 21. janúar. Auk Páls koma fram söngdívan Diddú, hörpuleikarinn Monika og strengjakvartett.

 

Systkinin syngja (bæði saman og sitt í hvoru lagi) úrval af sínum þekktustu lögum ásamt fleiru sem ekki heyrist jafn oft.

 

Allur ágóði rennur óskiptur til SÁÁ.

 

Tónleikarnir verða í Von Efstaleiti 7 og hefjast klukkan 20:30. Miðasala er nú þegar hafin í SÁÁ húsinu „VON“ Efstaleiti 7.  Sími 530 - 7600. Miðaverð er kr. 2000.-

 

Þeim sem komast ekki á tónleikana er bent á að tekið er við frjálsum framlögum á vef samtakanna.

 

Til baka...
- 16.1.2010 21:16:24 Húrra fyrir Diddú og Páli,fleirri listamenn gott mál:)
Stuðnigsfólk
Gott að hafa og eiga svona gott stuðnigsfólk fyrir samtökin, frábær talsmaður SÁÁ og góð fyrirmynd í alla staði
SG

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.