Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Fréttir

Senda á Facebook
28. janúar 2010 10:08

Batahelgi

 

Batahelgin fer fram næstkomandi laugardag og sunnudag kl. 09:00 - 16:00. Skilyrði þátttöku í batahelginni er að þátttakendur hafi verið allsgáðir og virkir í AA-samtökunum í minnst þrjá mánuði. Ekkert mælir gegn því að hjón (fólk í sambúð) komi saman á batahelgina, enda verði þau ekki saman í hóp.

 

Markmið batahelgarinnar er að auka skilning þátttakenda á bata við alkóhólisma og hjálpa þeim til að glöggva sig á hvar þeir eru staddir í þróun batans. Í kjölfar helgarinnar ættu þátttakendur að skilja betur en áður, hvaða verkefnum þeir standa frammi fyrir, vera hæfari til að setja sér markmið og framfylgja þeim.

 

Fyrirlestrar og hópfundir

 

Batahelgin fer fram með fyrirlestrum og hópfundum. Haldnir eru fimm fyrirlestrar:

 

• Alkóhólismi og bati við honum

• Bataþróun

• Bati og ófullkominn bati

• Föll og fallþróun

• Sjálfsskoðun

 

Þátttakendur fá minnisblöð í fyrirlestrartímum svo þeir geti fylgst betur með og rifjað upp efni fyrirlestrana síðar. Hópfundir verða 6 og einn sameiginlegur fundur með öllum þátttakendum er í lokin. Á hverjum hópfundi er sérstakt umræðuefni tengt fyrirlestrunum, sem ráðgjafi kynnir í upphafi fundar.

 

Batahelgar eru reglulega á dagskrá í VON Göngudeild SÁÁ í Reykjavík og einnig í Göngudeild SÁÁ á Akureyri.

 

Skráning og upplýsingar eru í síma 530 7600

 

 

 

meira
Til baka...

 

TWEAK-spurningalistinn er 5 spurninga skimunarpróf einkum ætlaður konum - þó sérstaklega barnshafandi konum. Smelltu hér fyrir neðan til að taka prófið.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi (DVD)
Tæpitungulaust viðtal við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni á Vogi

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.