Fundur hjá Heiðursmönnum SÁÁ

Heiðursmenn SÁÁ funda á Vogi fimmtudaginn 11. febrúar n.k. Fundurinn hefst að venju kl 12.
Gestur Heiðursmanna að þessu sinni er Þorsteinn Einarsson starfsmannastjóri Kópavogs. Skorað er á Heiðursmenn SÁÁ að mæta og taka með sér gesti.
Heiðursmenn SÁÁ er félagsskapur velunnara SÁÁ sem hittast reglulega og vinna að hagsmunamálum SÁÁ. Þeir hittast annan hvern fimmtudag á Vogi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar og taka á móti gestum. Allir sem hafa áhuga á starfi Heiðursmanna geta haft samband við Maríus Óskarsson marius.osk@islandi.org eða SÁÁ í síma 530 7600.