SÁÁ
26. febrúar 2010 / 09:29
Senda á Facebook

Fjölskyldumeðferð SÁÁ 27-28 feb

 

Göngudeildarþjónusta fyrir aðstandendur vímuefnafíkla og spilafíkla, sjá vef

 

Það reynir mjög á alla í fjölskyldunni þegar einn úr henni verður fíkinn í vímuefni eða fjárhættuspil. Allir sem standa fíklunum nærri þurfa fræðslu og stuðning. Auk þessa getur álagið oft orðið svo mikið og langvinnt hjá þeim sem næst standa, að þeir verða beinlínis veikir og þurfa meðferð.

 

Frá upphafi hefur SÁÁ sinnt þessari mikilvægu þjónustu og frá árinu 1978 hafa verið haldin meðferðarnámskeið fyrir aðstandendur, auk þess sem boðið hefur verið upp á einstaklingsráðgjöf og stuðningshópa. Þessi starfsemi hefur verið einn mikilvægasti þáttur göngudeildarstarfsins og er unnin í nánum tengslum við meðferðarstarfið. Þannig er flestum nánum aðstandendum þeirra sem í meðferð eru, kynnt og boðin þessi þjónusta. Auk þjónustunnar sem veitt er á sérstökum meðferðarnámskeiðum, hafa aðstandendur verið hvattir til að taka þátt í meðferð ástvina sinna, koma í viðtöl, á fyrirlestra og taka þátt í hópmeðferð í tengslum við stofnanameðferð vímuefnafíklanna. Þetta er einkum áberandi í kvennameðferðinni.

 

Í Reykjavík eru haldin tvenns konar meðferðarnámskeið fyrir aðstandendur. Annars vegar eru það hefðbundin námskeið, sem haldin eru á kvöldin tvisvar sinnum í viku og standa í fjórar vikur. Hins vegar er um að ræða helgarnámskeið. Helgarnámskeiðin eru einkum fyrir þá sem eiga ekki eins heimangengt eða búa út á landi. Slík námskeið eru haldin reglulega í Reykjavík og á Akureyri.

 

Nánari upplýsingar í síma 530 7600

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.