SÁÁ
18. mars 2010 / 08:47
Senda á Facebook

SÁÁ og bandaríska heilbrigðisráðuneytið rannsaka lyf sem á að koma í veg fyrir föll hjá amfetamínfíklum eftir meðferð

 

Lyfið sem rannsaka á heitir naltrexone. Það hefur verið notað í nokkur ár við áfengissýki með nokkrum árangri. Sænskir vísindamen gerðu nýlega (2008) rannsókn sem gefur vonir um að lyfið geti komið í veg fyrir föll hjá amfetamínfíklum.

 

Nú á næstunni mun SÁÁ ásamt nokkrum samstarfsaðilum hefja viðamikla og dýra lyfjarannsókn. Undirbúningur verksins er á lokastigi. Það er undirstofnun bandaríska heilbrigðisráðuneytisins, NIDA, sem kostar rannsóknina að mestu en nokkur kostnaður mun falla á SÁÁ. Ekki hefur tekist að fá innlenda aðila til að styrkja rannsóknina enn sem komið er.

 

Lyfið sem rannsaka á er dýrt og rannsóknin er einungis möguleg vegna þess að lyfjafyrirtækið Alkermes lætur lyf og lyfleysur af hendi endurgjaldslaust.  Að öðru leyti kemur ekki fjárstyrkur frá því fyrirtæki. 

 

Samstarfsaðili  SÁÁ í rannsókninni er Pennsylvania Háskólinn í Bandaríkjunum (The University of Pennsylvania)

 

Lyfjarannsóknin er tvíblind sem kallað er og verður sjúklingum gefin forðasprauta (VIVITROL) einu sinni í mánuði í hálft ár. Sjúklingar fá að öðru leyti venjulega meðferð við sinni fíkn og sækja göngudeildarstuðning að stofnanameðferðinni lokinni.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.