SÁÁ
10. mars 2010 / 07:59
Senda á Facebook

Heiðursmenn halda fund

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík.

 

Gestur Heiðursmanna að þessu sinni er Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík.

Hún var varaborgarfulltrúi frá kosningum vorið 2006 og en tók sæti borgarfulltrúa þegar Svandís Svavarsdóttir var kjörin á þing vorið 2009. Sóley hefur lengi verið virk í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og hefur verið ritari flokksins frá árinu 2007.

 

Sóley hefur setið í umhverfisráði, mannréttindaráði, menningar- og ferðamálaráði, leikskólaráði og framkvæmda- og eignaráði. Hún situr nú í íþrótta- og tómstundaráði og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Jafnframt situr Sóley í stjórn Faxaflóahafna og er formaður borgarstjórnarflokks Vinstri grænna.

 

Sóley ólst upp að mestu leyti í Kópavogi en fluttist til Reykjavíkur á unglingsárum. Hún er stúdent frá MH og er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum. Hún hefur unnið hjá Félagsvísindastofnun HÍ, á auglýsingastofunni Hvíta húsinu, Auglýsingastofu skaparans og hjá íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar. Frá hausti 2007 hefur hún verið í fullu starfi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur og Vinstri græn.

 

Fundurinn 11. mars verður hefðbundinn og hefst venju samkvæmt kl 12.00 á sjúkrahúsinu Vogi.

 

Heiðursmenn hafa sannað sig sem öflugur bakhjarl SÁÁ og mikilvægt er að starfið sé lifandi og kröftugt. Skorað er á heiðursmenn SÁÁ að mæta og taka með sér gesti.

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...