Mikið álag hefur verið á sjúkrastofnunum SÁÁ og starfsfólki samtakanna undanfarin ár. Vímuefnavandinn hefur þyngst frá árinu 1997 og hefur það fyrst og fremst lent á SÁÁ. Framfarir í læknisfræði hafa kallað á nýja lyfjameðferð og rannsóknir sem eru kostnaðarsamar. Á meðan framboð á meðferðarúrræðum fyrir þá sem eru 17 ára og yngri hefur aukist á vegum Barnaverndarstofu hefur meðferðarframboð fyrir þá sem eru 18 ára og eldri dregist saman annars staðar en hjá SÁÁ. Áætla má að hlutur þeirra sem eru 17 ára og yngri sé um 5-6% af þeim sem til meðferðar leita á hverju ári vegna áfengis- og vímuefnavanda.

Landspítalinn Háskolasjúkrahús hefur dregið verulega úr heilbrigðisþjónustu fyrir vímuefnafíkla á undanförnum áratug og nú síðustu áru úr bráða og skyndiþjónustu. Þetta hefur óhákvæmilega leitt til aukinnar bráða og skyndiþjónustu hjá SÁÁ og aukinnar skyndi og flýtiinnlagna á Sjúkrahúsið Vog.
Morfínfaraldurinn sem hófst hér á landi 1999 hefur kallað á þörf fyrir viðhaldsmeðferð fyrir heróín- og morfínfíkla. Samkomulag er á milli embættismanna og yfirmanna heilbrigðisþjónustunnar um að þessi þjónusta skuli fara fram við Sjúkrahúsið Vog. Þessari þjónustu hefur verið komið á með ærnum kostnaði en ekkert fjárframlag fengist til sjúkrahússins vegna þess.
Komið hefur verið á skyndigreiningu og bráðamóttöku við Sjúkrahúsið Vog. Þessi þjónusta svo og aðrar breytingar í heilbrigðisþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnafíkla hafa gjörbreytt þjónustunni sem veitt er á Sjúkrahúsinu Vogi undanfarin ár. Innlögnum á Sjúkrahúsið Vog hefur fjölgað og hlutfall skyndiinnlagna og flýtiinnlagna stóraukist með verulegri aukningu álagi og kostnaðaraukaauka.
Framlag SÁÁ til sjúkrarekstursins á árinu 2003 var 63 milljónir og samkvæmt rekstraráætlunum stefnir að óbreyttum rekstri í 100 milljón
krónu halla á árinu 2004. SÁÁ getur ekki bætt þennan halla.
Allar þessar breytingar kalla á ítarlegar viðræður milli Heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ um kostnað og fjárframlög til sjúkrastarfsemi SÁÁ.
Samandreginn rekstrar- og efnhagsreikningur
Horfur í sjúkrarekstri SÁÁ á árinu 2004 og nauðsyn aukafjárveitingar
Horfur eru á að um 100 milljón króna halli verði á Sjúkrarekstri SÁÁ á árinu 2004 auk þess
sem nauðsynlegt er að leggja meiri fjármuni til þessarar meðferðar í náinni framtíð. Hér á eftir kemur upptalning á ástæðum þessa
- Allt frá árinu 1993 hefur vantað um 70 milljónir á núvirði inn í rekstarargrunn sjúkrastarfseminnar á hverju ári. SÁÁ hefur því þurft að greiða 700 milljónir með rekstrinum undanfarin 10 ár.
- Þrátt fyrir að hægt hafi verið að hagræða og auka framleiðni í sjúkrarekstrinum til að brúa þetta bil hefur stöðugt komið til nýrra útgjalda.
- Útgjöld vegna hækkaðra launa sem ekki hafa verið að fullu bætt í fjárframlö
gum
- Rannsóknarstofa Háskólans fór að krefja SÁÁ um rannsóknarkostnað vegna HIV-, HCV- og klamydiurannsókna árið 1997. Kostnaður vegna þessara rannsókna hefur stöðugt aukist
- Sveitarfélög hafa dregið saman og hætt fjárframlög til göngudeildarþjónustu SÁÁ á Akureyri og í Reykjavík.
- Skráning og sjúkraskýrslugerð hefur verið tölvuvædd og hefur það haft í för með sér um 10 milljóna krónu aukakostnaðar á ársgrundvelli.
- Kostnaður vegna lyfja hefur stóraukist.

- Á árinu 2004 mun koma til hækkunar á launakostnaði vegna nýrra stofnanasamninga við hjúkrunarfræðinga og vegna þess að of fáir læknar unnu hjá SÁÁ á árinu 2004
- Í rekstararáætlun er lyfjakostnaður líklega að einhverju vanmetinn
- Framlag ríkisins mun lækka um 10 milljónir frá því sem var á árinu 2003