Hvaðan koma skjólstæðingar SÁÁ og hvernig er þeim beint í viðeigandi meðferðarúrræði

Sjúkrastofnanir SÁÁ eru orðnar eðlilegur hluti af heilbrigðisþjónustunni í Reykjavík. Samvinna Vogs er mikil við Landspítalann Háskólasjúkrahús. Mikið er um að starfsfólk LSP leggi sjúklinga í skyndi inn á Sjúkrahúsið Vog eftir frumgreiningu á bráðamóttökum. Einnig hefur það færst í vöxt að sjúklingar sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða komi á Vog eftir flókna meðferð eða aðgerðir á Landspítalanum. Þannig komu 62 sjúklingar á Vog beint eftir skurðaðgerð á öðrum sjúkrastofnunum.
Heilsugæslulæknar og starfsfólk heilsugæslu og félagsþjónustu um land allt vísat skjólstæðingum sínum til SÁÁ. 
Sjúklingar geta snúið sér beint til göngudeilda SÁÁ til greiningar bæði í Síðumúla 3 í Reykjavík og á Akureyri. 2302 greiningarviðtöl voru tekin þar á árinu 2003 og sjúklingum vísað í mismunandi úrræði eftir það um 300 einstaklingum var vísað á Vog með þessum hætti. Á árinu 2003 var komið upp bráðmóttöku og greiningu á Sjúkrahúsinu Vogi fyrir þá sem töldu sig í bráðum vanda og voru á biðlista eftir að komast á Sjúkrahúsið Vog. Þeir sem nýta sér þessa þjónustu helst eru drukknir og vímaðir einstaklingar sem hafa verið nokkrum sinnum í meðferð áður hjá SÁÁ. 1187 einstaklingar nýttu sér þessa þjónustu og komu 1800 sinnum í greiningarviðtal auk þess sem þeir hringdu um 3000 sinnum. 715 þessara einstaklinga voru síðan lagðir inn á Sjúkrahúsið Vog skyndiinnlögn eða flýtiinnlögn vegna líkamlegra veikinda. Sjá töflu
Göngudeild við Sjúkrahúsið Vog |
|
|
|
jan - des 2003 |
viðtöl |
sími |
samtals |
|
|
|
|
|
1187 einstaklingur |
1830 |
6819 |
8649 |
|
|
|
|
|
|
Einstaklingunum var vísað: |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vísað í önnur úrræði |
202 |
|
|
|
missa tengsl |
270 |
|
|
|
Innlögn á Vog |
715 |
|
|
|
samtals |
1187 |
|
|
Af þessu má sjá að talsverð greining hefur átt sér stað áður en fólk er lagt inn á Sjúkrahúsið Vog. Á sjúkrahúsinu hefst síðan hin eiginlega greining á sjúklingunum bæði hvað varðar líkamlega heilsu og geðheilsu og lagt er mat á samstarfsvilja þeirra. Eftir það er fólki vísað í viðeigandi meðferð. Þannig fara sjúklingar ekki í endurhæfinu á göngudeild eða á endurhæfingarheimilin nema að samstarfsvilji þeirra sé tryggur og meðferðin sé við þeirra hæfi.
Biðtími eftir innlögn á sjúkrahúsið Vog er svo til enginn fyrir þá sem þurfa á slíkri meðferða að halda og eru að leita sér meðferðar í fyrsta sinn. Á sama hátt er biðtíminn enginn fyrir unglinga og lítill fyrir allar konur. Þeir sem lenda á biðlistum eru fyrst og fremst endurkomukarlar. Þeir eiga þá kost á því að koma á göngudeild við Sjúkrahúsið Vog og fá ástand sitt metið eins og áður hefur verið sagt frá og eru þá lagðir inn bráðainnlögn ef þörf krefur.
|
Hvaðan komu sjúklingar á Vog árið 2003 |
2351 innritun |
|
Af sjúkrastofnunum |
221 |
|
Af sambýlum fyrir fíkla |
23 |
|
Úr fangelsum |
21 |
|
Af götunni |
113 |
|
Að heiman |
1973 |
|
Ástand þeirra sem komu á Vog að heiman 2003 |
Alls 1973 innritun |
|
Ofurvímaðir |
138 |
|
Vímaðir |
419 |
|
Í slæmum fráhvörfum |
104 |
|
Í fráhvörfum |
705 |
|
Óvímaðir í ójafnvægi |
141 |
|
Óvímaðir í jafnvægi |
466 |