SÁÁ

Starfsfólk SÁÁ

Hjá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann ( SÁÁ) starfa í allt yfir 100 starfsmenn í 98, 4 stöðugildum. Starfsfólk í 67 stöðugildum vinnur að faglegri sjúkrastarmeðferð meðan starfsfólk í tæplega 24 stöðugildum vinna í eldhúsi, við ræstingu, við öryggisgæslu og þvotta. Starfsmenn í 7.4 stöðugildum vinna á skrifstofu samtakanna sem er að hluta kostuð af sjúkrastarfseminni.

 

Á Sjúkrahúsinu Vogistarfa 4 læknar með sérfræðimenntun og sérfróðir í vímuefnalækningum auk þess sem þar er staða deildarlæknis sem sjaldnast er mönnuð. Auk starfanna við Sjúkrahúsið Vog vinna læknarnir við göngudeildarþjónustu við Sjúkrahúsið og sinna þar bráðþjónustu, greiningu og viðhaldsmeðferð við ópíumfíkn. Þeir hafa einnig starfsskyldur á eftirmeðferðarheimilum og göngudeildum SÁÁ og sinna vaktþjónustu.

 

Hjúkrunarforstjóri er ráðinn að Vogi sem ber faglega ábyrgð á hjúkrun og stýrir henni. Þar vinna hjúkrunarfræðingar í 8 stöðugildum og sjúkraliðar einnig í 8 stöðugildum. Hjúkrunarfræðingarnir og sjúkraliðarnir eru sérfróðir og með mikla reynslu í vímuefnameðfereð og sumir þeirra hafa áratugareynslu.

 

Sameiginleg vaktþjónusta er á öllum sjúkrastofnunum SÁÁ. Á Sjúkrahúsinu Vogi er hjúkrunarfræðingur á vakt allan sólarhringinn.  Læknir er einnig á vakt á sjúkrahúsinu alla virka daga og á bakvakt utan dagvinnutíma.  Á endurhæfingarheimilunum á Staðarfelli og á Vík er áfengisráðgjafi á vakt allan sólarhringinn og hefur hann samband við vakthafandi lækni ef ástæða þykir til.

  • Við sjúkrastofnanir SÁÁ vinna áfeng- og vímuefnaráðgjafar í 40 stöðugildum þar af vinna 18 á Vogi.

  • Á Endurhæfingarheimilið að Staðarfelli  eru 9 stöðugildi þar af eru ráðgjafar í rúmlega 5 stöðugildum.

  • Á Endurhæfingarheimilið að Vík eru aðeins ráðgjafar að störfum í 5,6 stöðugildum

  • Á Göngudeild SÁÁ á Akureyri  er einn starfsmaður auk fagfólksins sem kemur til afleysinga úr Reykjavík

  • Á Göngudeild SÁÁ í Síðumúla 3 í Reykjavíkeru ráðgjafar í 10 stöðugildum og einn ritari.

  • Á Göngudeild við Sjúkrahúsiðstarfa nú tveir áfengisráðgjafar eingöngu meðan starfsfólk Sjúkrahússins leggur starfinu lið.

SÁÁ sér um menntun áfengis- og vímuefnaráðgjafanna

SÁÁ-samtökin hafa menntað sína áfengis- og vímuefnaráðgjafa sjálf nú um margra ára skeið.  Þeir sem koma til þessara starfa hafa mismunandi grunnmenntun og lífsreynslu.  Litið er svo á að þeir séu nemar fyrstu 2 árin í starfi og fá á þessu tímabili mikla handleiðslu og kennslu.

 

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar SÁÁ eru í dag um 40 og bera hitann og þungan af meðferðinni á öllum sjúkrastofnunum SÁÁ nema á Sjúkrahúsinu Vogi þar sem störf þeirra eru líka mjög mikilvæg. Þeir hafa tekið þátt í fyrirlestrum, séð að mestu um hópmeðferð og einstaklingsráðgjöf varðandi vímuefna- og spilafíkn. Þeir vinna undir handleiðslu sérfróðra lækna í áfengis- og vímuefnameðferð.

 

Símenntun

Frá stofnun samtakanna hefur símenntun sífellt verið starfrækt meðal ráðgjafanna og þeir sem hafa tekið þátt í henni og komið inn í fyrirtækið með fræðslu og handleiðslu eru bæði íslendingar og erlendir frumkvöðlar í meðferðarstarfi. Má nefna nöfn eins og John Wallace, Terence Gorski, Sheila Bloom, Norman Miller o.fl. Fyrirtækið hefur síðan haldið úti ráðstefnum árlegum í ein 15 ár. Þar sem boðið hefur verið bæði innlendum og erlendum aðilum til að halda uppi fræðslu. Á árinu 2002 héldu samtökin m.a. ISAM ráðstefnuna hér á Íslandi. Auk þessa hefur ráðgjafakennsla fyrir nýliða smám saman tekið á sig fasta mynd og fá ráðgjafar ákveðna handleiðslu og skipulagða kennslu fyrstu 2 árin í starfi. Og á þessum tíma vinna þeir á öllum starfsstöðum SÁÁ mislengi. Af þessum 2 árum liðnum hafa þau sem vinna sem ráðgjafar hjá SÁÁ því eignast alhliða þjálfun og reynslu á öllum meðferðarstofnunum SÁÁ.

 

Eftir fyrstu 2 árin heldur menntunin og handleiðslan ráðgjafanna áfram og margir ráðgjafar hafa fengið sérstaka fræðslu og handleiðslu í meðferð unglinga og spilafíkla o.s.frv. og tekið að sér sérhæfðari störf í ráðgjöfinni eins og að sjá um unglingameðferð, spilafíklameðferð og annað slíkt. Þeir eldri taka einnig þátt í kennslunni hafi þeir staðist alþjóðlega Ameríska ráðgjafaprófið eða eru Dagskrárstjórar.

 

240 klukkustundir í handleiðslu

Allir áfengis- og vímuefnaráðgjafar sem hefja störf hjá SÁÁ koma í þar til gert atvinnuviðtal og ef þeir koma til greina í námið koma þeir í starfskynningu svokallaða á Sjúkrahúsið Vog. Á þessari Starfskynningarviku gefst starfsfólki og yfirmönnum meðferðarinnar tækifæri til að meta að einhverju hæfileika væntanlegs starfsmanns. Hópur starfsmanna tekur síðan ákvörðun um það hvor ráða skuli nemann til reynslu til 3 mánuði. Allir nemarnir byrja störf sín á Sjúkrahúsinu Vogi og fyrstu 4 vikurnar þar fylgja þeir kennara sínum og er stöðugt undir handleiðslu hans. Nemin fær samskonar handleiðslu fyrstu tvær vikurnar í starfi á hinum sjúkrastofnunum SÁÁ. Neminn fær því um 240 klukkustunda handleiðslu með þessum hætti fyrsta árið. Auk þessa fær hann beina kennslu í 80 klukkustundir á ári.

 

Áfengis- og vímuefna ráðgjafar og ráðgjafanemar sitja starfsmannafundi tvisvar sinnum á dag á Sjúkrahúsinu Vogi þar sem farið er yfir sjúklingasvinnuna með þeim og meta má þetta sem beina handleiðslu sem nemur um 300 klukkustundir á ári fyrir þá sem eru að læra.

 

Fagleg málefni og siðfræði og siðareglur

Auk þessa sækja ráðgjafanemarnir ýmis konar fræðslu og námskeið sem í boðið er á vegum SÁÁ sem meta má á 40 klukkustundir. Í kennslunni og handleiðslunni er lögð áhersla á að kenna áfengis- og vímuefnaráðgjöfunum ýmir almenn þekkingaratriði í lyfjafræði, geðlæknisfræðum og sálarfræði auk sértækrar þekkingar eins og um lyfjafræði vímuefna, fylgikvilla vímuefnaneyslunnar, afleiðingar hennar á fjölskyldulíf og fl. Lögð er mikil áhersla á fagleg málefni og siðfræði og siðareglur bæði í kennslunni og handleiðslunni. Að lokum er kenndar aðferðir sem ráðgjafarnir þurfa að tileinka sér í viðtölum, hópvinnu og fyrirlestrum.

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...