SÁÁ

Starfsemin

 

Sjúkrahús 

SÁÁ starfrækir Sjúkrahúsið Vog í Reykjavík sem var tekið í notkun árið 1984 og hefur fjöldi sjúklinga að undanförnu verið um 2000 á ári. Öll meðferð samtakanna hefst á sjúkrahúsinu Vogi. Gerðar eru læknisfræðilegar greiningar á öllum sjúklingum og þar með geðgreiningar. Aðkeyptar eru allar nauðsynlegar læknisrannsóknir og þau sérfræðiálit sem þörf er á bæði hvað varðar líkamlega heilsu og geðræn vandamál. Gerðar eru skimunarrannsóknir vegna kynsjúkdóma, alnæmis og lifrarbólgna og unglingar eru bólusettir við lifrarbólgu B. Allt þetta starf er unnið í náinni samvinnu við Húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans, Smitsjúkdómavarnir Landlæknisembættisins og Lyflækningadeildir Landspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur. Auk þessa er góð samvinna við Geðdeild Landspítalans. 

 

Á nýársdag árið 2000 var tekinn í notkun fyrsti áfanginn í nýbyggingu við sjúkrahúsið, sérstök deild handa áfengis- og vímuefnasjúkum ungmennum, og skömmu síðar bætist við ný bráðamóttaka og göngudeild við sjúkrahúsið. 

 

Göngudeildir

Auk Sjúkrahússins Vogs rekur SÁÁ umfangsmikla starfsemi í Reykjavík. Göngudeild samtakanna er í Efstaleiti 7 en þar er eftirmeðferð fyrir sjúklinga og fræðslu- og upplýsingamiðlun. Samtökin reka eitt áfangaheimili í Reykjavík, við Miklubraut til að styðja sjúklinga sína á leið til bata og fullrar þjóðfélagslegrar þátttöku. Skrifstofa SÁÁ er í Efstaleiti.

 

Á Akureyri starfrækir SÁÁ göngudeild og upplýsingaþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra. 

 

Eftirmeðferð og félagslegur stuðningur

Staðarfell í Dölum og Vík á Kjalarnesi eru eftirmeðferðarstöðvar SÁÁ og útskrifa á hverju ári um 800 sjúklinga samtals.

 

SÁÁ hefur í nokkur ár rekið sambýli fyrir karla og konur í Reykjavík og fyrir karla á Akureyri. Sambýlisrekstur á Akureyri hefur nú verið lagður niður. Allur þessi sambýlarekstur er tiltölulega nýr þáttur í starfi SÁÁ.  Einstaklingarnir borga sjálfir fyrir vist í sambýlum. Félagsleg aðstoð sem þessi að meðferð lokinni bætir árangur meðferðarinnar verulega og er orðinn ómissandi þáttur í starfi SÁÁ.

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...