SÁÁ

Göngudeild í Reykjavík

Efstaleiti 7, 103 Reykjavík.
Sími: 530-7600, fax: 530-7601
Opnunartími: Mán.- fim. kl. 9:00-17:00
Fös. kl. 9:00-16:00
Lokað í hádeginu frá kl.12:00-12:45


Dagskrárstjóri Göngudeildar SÁÁ í Reykjavík er Hörður Oddfríðarson


Eftir meðferð fá sjúklingar formlegan stuðning á göngudeildum SÁÁ einu sinni til tvisvar í viku í þrjá til tólf mánuði. Auk göngudeildarinnar í Reykjavík rekur SÁÁ einu göngudeildina fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga utan höfuðborgarsvæðisins á Akureyri. Foreldrum, mökum og öðrum úr fjölskyldu vímuefnaneytandans býðst sérstök fræðsla og meðferð á göngudeildunum. Heimsóknir á göngudeildir SÁÁ eru yfir 22 þúsund á ári.


Fimm meginleiðir

Meðferðarúrræðin og aðstoðin eru margbreytileg en þó má greina fimm meginleiðir sem standa sjúklingum til boða að lokinni dvöl á Vogi. 

  • Fyrsti möguleikinn er að fólk fari til síns heima að lokinni stuttridvöl á Vogi og fái eftir það óskipulagðan stuðning frá göngudeild eftir þörfum.
  • Annar valkostur er fyrir þá sem búsettir eru á Reykjavíkursvæðinu, eru eldri en 25 ára og búa við nógu góðar félagslegar aðstæður og líkamlega heilsu. Þessir einstaklingar fá göngudeildarmeðferð í Reykjavík fjögur kvöld í viku fyrstu fjórar vikurnar en síðan einu sinni í viku næstu þrjá mánuðina.
  • Þriðji möguleikinn fyrir karla og konur er að fara á Staðarfell eða Vík til fjögurra vikna endurhæfingar og þiggja að þeirri dvöl lokinni stuðning frá göngudeild í tvo til þrjá mánuði.
  • Fjórði möguleikinn er fyrir endurkomukarla og felst hann í sérstakri meðferð í fjórar vikur á Staðarfelli (Víkingameðferð) og síðan stuðningi í göngudeild í eitt ár.
  • Fimmti valkosturinn er sérstaklega fyrir konur. Að lokinni dvöl á Vogi fara þær í sérstaka fjögurra vikna kvennameðferð á Vík og þaðan í göngudeildarstuðning í eitt ár.

Þjónusta við unglinga

Göngudeild SÁÁ hefur með ári hverju aukið þjónustu við unglinga sem flosnað hafa upp frá meðferðinni á Vogi eða hafa aldrei verið þar, Þannig hefur færst í vöxt að undirbúa unglingana fyrir meðferðina í einstaklingsviðtölum á göngudeild. Á sama tíma hefur þjónusta við foreldra þessara ungmenna einnig aukist.


Unglingarnir og fjölskyldur þeirra snúa sér oftast í byrjun til göngudeilda SÁÁ í Reykjavík eða á Akureyri. Þar eru unglingarnir og fjölskyldur þeirra búin undir væntanlega meðferð sem hefst, líkt og hjá öðrum, á Sjúkrahúsinu Vogi. Þar er gerð læknisfræðileg, geðlæknisfræðileg og sálfræðileg greining á vanda þeirra og framhaldinu hagað samkvæmt niðurstöðum greininganna.

 

Smellið á dagskrá Göngudeildar í Reykjavík
Sjá meira um þjónustu Göngudeildar SÁÁ í Reykjavík

 

Sjá einnig pfd skjöl um úrræði og fundi í Von Efstaleiti

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...