Meðferðarheimilið Staðarfelli
371 Búðardal
Sími: 530-7600, fax: 434-1308
Netfang: stadarfell@saa.is
Dagskrárstjóri er Gísli Stefánsson
Á Staðarfelli fer fram endurhæfing sjúklinga sem koma frá Sjúkrahúsinu Vogi. Þangað fara karlar til fjögurra vikna endurhæfingar og þiggja að þeirri dvöl lokinni stuðning frá göngudeild í nokkrar vikur. Á Staðarfelli fer einnig fram meðferð fyrir endurkomukarla sem felst í sérstakri meðferð í fjórar vikur á Staðarfelli og síðan stuðningi í göngudeild í eitt ár.
Meira en 20 ár
Það var árið 1980 að gengið var frá samningi á milli SÁÁ og þáverandi menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra um afnot SÁÁ af Staðarfelli. Þar hafði verið rekinn húsmæðraskóli í hálfa öld alveg fram til ársins 1977.
Samningur SÁÁ og ráðuneytanna var síðan framlengdur á nokkurra ára fresti en óvissa ríkti jafnan um framtíð Staðarfells sem eftirmeðferðarheimilis. Það var ekki fyrr en í apríl 1996 að fjórir ráðherrar og ábúandi Staðarfells undirrituðu samning við SÁÁ sem tryggði reksturinn til langframa. Með þeim samningi gat SÁÁ ennfremur ráðist í nauðsynlegar og löngu tímabærar viðgerðir á húsnæðinu. Frá fyrsta degi hefur hvert rúm verið skipað á Staðafelli.
----------------------------
Staðarfell er gamalt höfuðból. Þar bjó Þórður Gilsson faðir Hvamms-Sturlu, á 12. öld.
Á Staðarfelli var starfræktur húsmæðraskóli frá 1927 til 1976. Magnús Friðriksson og Soffía Gestsdóttir gáfu jörðina í minningu einkasonar síns, Gests og fóstursonar, Magnúsar, til stofnunar húsmæðraskóla.
Kirkjan, sem nú stendur, er úr timbri og var vígð 1891.