Meðferðarheimilið Vík
270 Kjalarnesi
Sími: 530-7600, fax: 566-8230
Netfang: vik@saa.is
Dagskrárstjóri er Halldóra Jónasdóttir
Á Endurhæfingarheimilinu á Vík hefur hvert rúm verið notað undanfarin ár. Þar fer fram endurhæfing sjúklinga sem koma frá Sjúkrahúsinu Vogi. Á Vík fer fram sérstök kvennameðferð sem sniðin er sérstaklega að þörfum kvenna. Ákveðið hefur verið að gera Vík að fyrsta íslenska meðferðarheimilinu þar sem einungis eru konur í vímuefnameðferð. Við það skapast miklu betri aðstæður til að mæta sérþörfum kvenna í áfengis- og vímuefnameðferðinni. Von er á að þessi breyting auðveldi konum til mikilla muna að koma til meðferðar og hlutfall þeirra aukist í sjúklingahópnum.
Konum sem hafa áður verið í meðferð á Vík og náð þeim áfanga að vera edrú í eitt ár eða lengur gefst nú kostur á svokallaðri á vikudvöl á Vík. Vikudvölin er hugsuð sem n.k. "verðlaunavika" sem konurnar geta veitt sér til að fagna góðum árangri og í leiðinni rifjað upp fræðin og aðferðirnar til að hafa í fersku minni. Frekari upplýsingar veitir Halldóra Jónasdóttir á Vík í síma 530-7600.
Byggt fyrir sjálfsaflafé
Fyrsta skóflustunga Meðferðarheimilisins Vík var tekin við hátíðlega athöfn þann 27. apríl 1991. Framkvæmdir hófust síðan af fullum krafti í maí og sex mánuðum síðar, þann 26. nóvember skilaði verktakinn húsinu fullbúnu. Húsið var opnað formlega laugardaginn 14. desember að viðstöddum fjölda gesta. Vík var síðan til sýnis almenningi en fyrstu sjúklingarnir komu þangað þann 17. desember 1991. Heildarkostnaður við bygginguna var um 90 milljónir króna og var að öllu leiti greiddur með sjálfsaflafé samtakanna.