Reglur um úthlutun
- Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð. Með því er reynt að koma í veg fyrir að áfengis- og vímuefnasjúklingar fái ekki tilhlýðilega meðferð vegna fátæktar.
- Tekjur í Styrktarsjóð SÁÁ koma frá einstaklingum, fyrirtækjum, stéttarfélögum og opinberum aðilum.
- Styrkir úr sjóðnum eru aðeins veittir þeim sjúklingum sem fara í endurhæfingarmeðferð á Staðarfell, Vík eða í endurhæfingu á göngudeild (M-hóp). Einnig geta aðstandendur áfengis- og vímuefnasjúklinga óskað eftir styrk til að greiða fyrir fjölskyldumeðferð.
- Framlög úr sjóðnum renna beint til þess að greiða umrædd vistgjöld.
- Þeir sem eiga rétt á fjárhagsstuðningi frá Velferðarsviðum sveitarfélaga munu ekki fá styrk úr þessum sjóði. Forsenda styrkveitingar er þörf sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ metur.
- Hægt er að veita styrk sem hluta af vistgjaldi eða fyrir vistgjaldinu öllu. Til þess að umsókn í sjóðinn teljist gild þarf að útfylla þar til gert eyðublað og áfengis- og vímuefnaráðgjafa sem er í starfi hjá SÁÁ þarf síðan að undirrita umsóknina ásamt viðkomandi sjúklingi.
Hægt er að leggja inn á styrktarsjóðinn með korti (sjá valmynd og hnapp) en einnig með því að leggja beint inn á reikning sjóðsins, kt. 521095-2459, banki 116, höfuðbók 15, reikningur 380410.