SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

-- Sóley og Samaris

 

Þriðjudaginn 4. október...Kaffi, kökur og rokk&ról >>

Það var fullur salur af ófullu fólki í Edrúhöllinni í Efstaleiti 7 síðasta þriðjudag þegar Agent Fresco og Mammút léku við hvurn sinn fingur. Frábærir tónleikar, yndisleg stemning og Höllin að koma sterk inn í tónlistarflóruna. Hljómburðurinn þarna er magnaður eins og oft hefur komið fram og rjúkandi kaffið og dísætar kökurnar á kantinum fullkomna upplifunina.

 

Næstu tónleikar verða þriðjudaginn 4. október. Þá kemur hin lofaða Sóley fram en nýjasta plata hennar, We Sink, hefur fengið framúrskarandi dóma og menn og konur eru þegar farin að tala um hana sem eina af plötum ársins. Með Sóley spila Samaris, nýbakaði sigurvegarar Músíktilrauna. Dásamlegt og draumkennt rafpopp en skútunni stýrir Jófríður Ákadóttir (Pascal Pinon)

--Sóley

Sóley hafði starfað með Sin Fang Bous og Seabear m.a. þegar fyrsta EP plata hennar, Theater Island, kom út í fyrra á vegum Morr Music í Berlín. Platan fékk frábærar viðtökur og We Sink, breiðskífa hennar sem út kom fyrir stuttu, er að fá svipaða dóma. Frábær listamaður sem er á algeru flugi um þessar stundir.
 
"Það er yndisleg tilfinning í tónlist Sóleyjar sem ber mann í annan heim, heim á milli drauma og veruleika ... Ég fagna tilkomu þessa mikla snillings inn í íslenskt tónlistarlíf"
-Ingveldur Geirsdóttir, mbl. 13. sept. 2011. Um We Sink.
 
"Þetta er ein af þeim plötum (og þær eru ekki margar) sem grípa mann með fyrsta tóni og draga mann inn í óræðan heim drauma og dásemda.
Manni fer einfaldlega að líða vel um leið og fyrsta lagið, „Dutla“, fer af stað."
-Arnar Eggert Thoroddsen, mbl. 24. ágúst. 2010. Um Theater Island

 

--Samaris

Samaris sigraði örugglega í Músíktilraunum í ár. Vinkonurnar Jófríður Ákadóttir og Áslaug Rún Magnúsdóttir stofnuðu tríóið með Þórði Kára Steinþórssyni og hófu að blanda saman raftónlist og lífrænni straumum með mögnuðum árangri. Svo sagði Arnar Eggert um frammistöðu þeirra í

tilraununum: "Það mátti heyra saumnál detta þegar Samaris sveif inn í draumheima og gæsahúðin brast á með offorsi. Það er ekki oft sem maður veit hver á eftir að vinna eftir að fyrsta lagið er hálfnað. Algjörir og tandurhreinir töfrar. Samaris á eftir að fljúga inn í vitund áhugafólks um fallega og heiðarlega tónlistarsköpun um allan heim ef rétt verður á spöðum haldið"

 

"Í stuttu máli er þetta frábær frumraun hjá einni mest spennandi hljómsveit landsins."

-Hallur Már, mbl. 9. ágúst 2011. Um Hljóma þú, EP plötu Samaris

 

Takið daginn frá!

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.