SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Agent Fresco og Mammút

Þriðjudaginn 27. september...Kaffi, kökur og rokk&ról >>

Edrúhöllin í Efstaleiti 7 heldur áfram að skjálfa undan drynjandi, dásamlegu rokki, ástríðufullu kökuáti og slúrpandi kaffidrykkju. Næstu tónleikar verða þriðjudaginn 27. september kl 20:00 og það er gríðarlegur heiður að geta boðið upp á tvær af bestu tónleikasveitum landsins, Agent Fresco og Mammút.

 

  

--Agent Fresco

Sveitin er ferskasta og jafnbesta rokksveit sem fram hefur komið hér á landi í þónokkurn tíma. Tónleikar sveitarinnar eru magnaðir og meðlimir gefa sig alla, eins og um líf og dauða sé að tefla. Spútnikrokksveit ársins og síðustu ára ef út í það er farið...

 

.. hiklaust frambærilegasta rokkband landsins í dag og ein öflugasta tónleikasveit sem fólk hefur séð. Yfirvöld ættu að styrkja þessa kappa til áframhaldandi sigra - eins og hverja aðra stórmeistara sem þeir eru eru.

 

 

 

--Mammút

Mammút er orðin ein þéttasta rokksveit landsins, afar dugleg við spilamennskuna og að baki eru nú tvær breiðskífur. Sveitin er að fara að leggja í þá þriðju og hefur lítið kom fram að undanförnu þannig að hér gefst einstakt tækifæri. Stofnuð sem stúlknatríó 2003 undir nafninu ROK. Mammút nafnið var þó tekið upp fljótlega og bættust þá strákarnir í hópinn. Mammút tók þátt í Músíktilraunum 2004 og bar sigur af hólmi.

 

Takið daginn frá!

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.