
Áströlsk 2006
Leikstjóri: Neil Armfield
Leikarar: Heath Ledger, Abbie Cornish, Geoffrey Rush o.fl.
24. október
Sýnd kl. 21:00
Candy er gerð eftir bók ástralska höfundarins og skáldsins Luke Davies, sem ánetjaðist heróíni en náði síðar að verða edrú. Sagan er byggð á kafla úr lífi Luke; sambandi hans við stúlkuna Candy, foreldra hennar og gamlan og sjóaðan heróínsjúkling. Í grunninn er þetta ástarsaga en sem fíknin strokar út. Luke Davies hefur haldið sig frá vímugjöfum í mörg ár og skrifað nokkrar bækur sem hafa selst vel og fengið góða dóma. Áhorfendur geta því huggað sig við að sagan endar vel — eftir að myndinni líkur.
Það er Heath Ledger sem leikur Dan, persónuna sem er byggð á höfundinum. Og eins og oftast er frammistaða hans frammúrskarandi. Hið sama má reyndar segja um hina kornungu Abbie Cornish, sem leikur stúlkuna Candy. Geoffrey Rush er hins vegar sjálfum sér líkur í hlutverki Casper, gamalls fíkils.
Sem kunnugt er dó Heath Ledger af of stórum skammti af lyfjakokteil tæplega þrítugur að aldri. Flest voru þessi lyf kvíðastillandi eða til að stemma stigum við þunglyndi eða verkjum — ekki vímuefni af götunni heldur úr apótekinu. Á stuttum ferli sýndi Heath Ledger að hann var einstakur hæfileikamaður. Frammistaða hans í þessari litlu áströlsku myndi er glæsileg. Það er hæpið að einhver hafi farið betur með hlutverk heróínsjúklingsins.
Fyrir áhugamenn um bókmenntir; þá segist höfundurinn Luke Davies hafa fengið löngun til að verða edrú við lestur bókarinnar Arctic Dreams eftir kanadíska skáldið og höfundinn Barry Lopez. Þessi bók er byggð á fimmtán ferðum Lopez til ísauðnanna í nyrstu hlutum Kanada og þykir meðal bestu bóka sem lýsa fegurð, hreinleika og ógn norðursins — norðurs sem gerir Ísland að hitabeltislandi. Ljóðrænn texti Lopez af ísnum í norðri kveikti lífslöngun í brjósti Luke Davies í hitanum í Ástralíu, svo til alveg hinum meginn á hnettinum. Heath Ledger les kafla úr Arctic Dreams fyrir elskuna sína í myndinni.
Til baka