Tónleikaröðin sívinsæla Kaffi, kökur & rokk & ról heldur áfram af miklum mætti eins og venjulega. Áttundu tónleikarnir kalla á stórar "byssur" en það er engin önnur en hin ofurvinsæla Dikta sem mun leika fyrir fókuserað fólk næsta þriðjudag, 15. nóvember.