SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Factotum

Bandarísk 2005

Leikstjóri: Bent Hamer

Leikarar: Matt Dillon, Lili Taylor, Marisa Tomei o.fl.

31. október

Sýnd kl. 21:00

 

Charles Bukowski er án efa vinsælasta fyllibytta kvikmyndasögunnar. Þessi stílisti, alkóhólisti, skáld og flagari hefur verið leikinn af ekki minni mönnum en Ben Gazzara, Matt Dillon og Mickey Rourke — og James Franco mun líklega bætast í hópinn von bráðar.

 

Bukowski var slæm fyllibytta nær öll sín fullorðins ár. Engar sögur fara af tilraunum hans til að hætta drykkju, nema þá í skamman tíma þegar hann reyndi að stramma sig af á meðan hann lauk við sögu eða ljóðabók. Hann gekkst upp í því að vera fyllibytta. Mætti fullur á ljóðaupplestur og mætti fullur í sjónvarsviðtöl beggja vegna Atlandshafsins. Hann hélt tryggð við lítið útgáfufélag, sem gaf út flestar bækur hans, en hann gaf líka út allskyns bækur og efni sjálfur eða hjá jaðarútgáfum — sumt í fjölriti í örlitlu upplagi. Bukowski var þannig sannur utnagarðsmaður; í opinberu lífi sem einkalífi.

 

Þekktasta mynd Bukowski er Barfly eftir Barbet Schroeder með ógelymanlegri frammistöðu Mickey Rourke og Faye Dunaway. Bukowski skrifaði handritið að myndinni án þess að byggja það á fyrri verkum. Seinna skrifaði hann bókina Hollywood um þann tíma sem hann vann að handritinu, en sú bók var að koma út í íslenskri þýðingu Hjördísar Sigurðardóttur.

 

Ítalski leikstjórinn Marco Ferreri gerði árið 1981 Storie di ordinaria follia eða Tales of Odinary Madness upp úr samnefndu smásagnasafni. Þar lék Ben Gazzara persónu Bukowski en hin fagrs Ornella Muti eina af ástkonum hans (enda var sú persóna byggð á sögu sem hét Fegursta kona bæjarins). Belgísk-flæmski leikstjórinn Dominique Deruddere gerði síðan Crazy Love 1987 — sama ár og Barfly var gerð — og byggði á skrifum Bukowski.

 

Factotoum var síðan gerð 2005 og byggir á samnefndri bók. Þar fer Matt Dillon með hlutverk Hank Chinaski (en það heitir Bukowski yfirleitt í bókum sínum) og gerir það frábærlega. Ástkonurnar eru í höndum Marisu Tomei og Lili Tomlin og eiga þær báðar frábæran leik — Tomlin snillarlegan. Sagan er lík öðrum frá Bukowski; drykkfelldur höfundur vafrar um líf sitt og milli kvenna, tekur sig á og skrifar, milli þess sem hann fer á grenjandi túr.

 

Eins og áður sagði stendur til að James Franco leiki Bukowski í mynd sem hann vill gera upp úr bókinni Ham on Rye. Ef af því verður er hæpið að nokkur önnur fyllibytta muni nokkru sinni slá út Bukowski í skrásetttu fylleríi. Þar kemur margt til. Í fyrsta lagi var Bukowski frábær höfundur, með sérstæða og afgerandi rödd. Í öðru lagi bjó hann í Los Angeles og var því einskonar Dagur Sigurðarson kvikmyndaborgarinnar. Í þriðja lagi hafa svo góðir leikarar leikið hann að það er draumur allra ungra karlleikara að fá að spreyta sig á honum.

 

Sýnishorn: http://www.imdb.com/video/screenplay/vi3584229657/ 

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.