SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

John Grant

John Grant á Kaffi, kökum & rokki & róli

 

Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról fer aftur í gang þriðjudaginn 17. janúar næstkomandi í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7. Það er hinn virti bandaríski tónlistarmaður John Grant sem mun opna röðina.

 

John Grant hefur verið í miklu dálæti hjá tónlistarunnendum síðustu misseri en hann vakti mikla athygli með fyrstu sólóplötu sinni, The Queen of Denmark (2010). Var hún valin plata ársins af hinni mikilsvirtu tónlistarbiblíu Mojo það ár. Grant spilaði þá á Airwaves og fékk mikið lof fyrir. Tók hann ástfóstri við land og þjóð og mun hann dvelja hér þennan mánuð og vinna að tónlist sinni.

 

Forsvarsmenn tónleikaraðarinnar hafa verið í góðu sambandi við Grant síðan hann kom hingað til lands í október og að sögn þeirra tók hann einkar ljúfmannlega í þá hugmynd að opna röðina. Hún verður með svipuðu fyrirkomulagi og verið hefur og verða tónleikar á hálfsmánaðarfresti, sjá einnig viðburð á Facebook.

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.